Hotel Anabel er gott 4 stjörnu hótel, staðsett í Lloret de Mar og steinsnar frá miðbænum með næturlífi, börum og verslunum og 5 mínútur frá strönd. ATH að enskumælandi fararstjóri er á svæðinu.
GISTING
Herbergin eru snyrtileg með sjónvarpi og góðum baðherbergjum. Þau snúa annðhvort út í garð, að sundlauginni eða út að götu. Góð og falleg sameiginleg aðstaða.
AÐSTAÐA
Garðurinn er með 2 sundlaugum, ein af þeim barnalaug. Sólbaðsaðstaða og bar í garðinum. Heilsulind.
AFÞREYING
Hótelið býður upp á daglega skemmtidagskrá fyrir alla aldurshópa.
VEITINGASTAÐIR
Hótelið býður upp á fjölbreytt hlaðborð frá morgni til kvölds á veitingastað hótelsins.
FYRIR BÖRNIN
Barnaklúbbur.
STAÐSETNING
Hótelið er vel staðsett rétt við miðbæ Lloret de mar, rétt ofan við bæinn.
AÐBÚNAÐUR
Útisundlaug
Sólbaðsaðstaða
Veitingastaður
Hlaðborðsveitingastaður
Barnalaug
Heilsulind
Skemmtidagskrá
Loftkæling
Svalir/verönd
Öryggishólf (gegn gjaldi)
Baðherbergi
ATH
Frá1 nóvember 2012 var settur sérstakur gistiskattur á allar hótelgistingar í Katalóníu. Farþegar þurfa að greiða þetta gjald beint til hótelsins. Enskumælandi fararstjóri er á svæðinu.
Upplýsingar
C/ Felicia Serra, 10 17310 Lloret de Mar, Spain
Kort