Cala Fornells

Hótel Coronado er 4* hótel, sem er staðsett í einnar mínútu fjarlægð frá ströndinni Cala Fornells. Hótelið hefur upp á margt að bjóða og er tilvalið fyrir fjölskyldur. Herbergin eru rúmgóð og björt með frábæru útsýni. 

GISTING 

Tvíbýlin rúma allt að þrjá fullorðna og eitt barn. Þau eru þægileg og rúmgóð, með annað hvort verönd eða svölum. Útsýnið beinist að skóglendi eða yfir ströndina Cala Fornells. Þau eru loftkæld og búin öllum helstu þægindum, til að mynda sjónvarp, baðherbergi og frítt internet. 

AÐSTAÐA 

Hótelið er vel útbúið aðstöðu til slökunar, en þar má meðal annars finna spa, inni- og útilaug, nudd og líkamsræktaraðstöðu.

Ýmislegt áhugavert er einnig í boði fyrir útivistargarpa. Í aðeins 3,5 km fjarlægð frá hótelinu má finna 18 holu golfvöllinn, Golf de Andraxt. Í hlíðum Cala Fornell eru spennandi gönguleiðir og á hótelinu er boðið upp á hjólaleigu og hjólreiðatúra með leiðsögumanni. 

VEITINGAR

Veitingastaður, snarlbar og bar eru á hótelinu, á herbergjum er minibar. 

STAÐSETNING 

Hótelið er í Paguera, í nokkurra mínútna fjarlægð má finna nokkra golfvelli. 

AÐBÚNAÐUR Á HOTEL CORONADO 

Sturta 

Salerni 

Svalir 

Sjónvarp 

Frítt internet 

Minibar

Spa

Sauna

Líkamsræktaraðstaða

Öryggishólf

Útisundlaug 

Innisundlaug

Verönd 

Veitingastaður 

Sólbaðsaðstaða 

Snarlbar 

 

ATH

Ljósmyndir af gististöðum eru birtar til að gefa hugmynd um vistarverur og umhverfi gististaða. Við getum því ekki ábyrgst að engar breytingar hafi átt sér stað frá því að myndirnar voru teknar. 
 
Aðgangur að interneti getur verið hægari á álagstímum. 
 
Skemmtidagskrá getur verið árstíðarbundin.
 
Ferðamenn á Mallorca greiða gistiskatt sem ekki er hluti af verði okkar og er innheimtur við innritun af hótelinu sjálfu. Hann er reiknaður á mann fyrir hverja nótt á gististaðnum. Upphæðin er breytileg eftir opinberri stjörnugjöf gististaðana.

Upplýsingar

Carretera de Cala Fornells, 80, 07160 Calvià, Illes Balears, Mallorca- Spánn

Kort