Hótel Costa Canaria er fallegt og vel hannað 4ra stjörnu hótel staðsett á San Agustin ströndinni, í um 30 mínútna göngufjarlægð frá Playa del Inglés. Hótelið er einungis fyrir 18 ára og eldri.
GISTING
Hótel Costa Canaria er mjög fallegt og vel hannað 4ra stjörnu hótel við San Agustin ströndina á Gran Canaria. Herbergin eru nýtískulega hönnuð í fallegum og litríkum stíl. Þar er að finna sjónvarp og rúmgóð baðherbergi með öllu tilheyrandi. Björt og litrík gisting.
AÐSTAÐA
Í garðinum, sem er einstaklega stór og rúmgóður, með nóg af bekkjum og plássi, er flott sundlaug en einnig er í boði heilsulind. Í garðinum er einnig að finna veitingastaði og bari.
AFÞREYING
Á hótelinu er mjög góð aðstaða til líkamsræktar, bókasafn með alþjóðlegum tímaritum og blöðum og skemmtilegur bar sem og sameiginleg aðstaða.
VEITINGASTAÐUR
Á hótelinu eru veitingastaðir með mjög fjölbreyttum matseðli og snarlbar við laugina sem ber fram létta rétti yfir daginn. Einnig er að finna The Salon Bar með frábærum kokteilum og tónlist.
FYRIR BÖRNIN
Hótelið er eingöngu fyrir fullorðna.
STAÐSETNING
Hótelið er staðsett á San Agustin svæðinu á suðurhluta Gran Canaria í um 3 km fjarlægð frá Playa del Inglés. Frá hótelinu er göngustígur niður á Playa de Las Burras ströndina þar sem finna má afþreyingu svo sem vatnasport.
AÐBÚNAÐUR
Loftkæling
Útisundlaug
Heilsulind
Nuddpottur
Sólbaðsaðstaða
Sólarhringsmóttaka
Töskugeymsla
Frítt internet við gestamóttöku.
Líkamsræktaraðstaða
Billiard
Borðtennis
Tennisvöllur
Veitingasstaðir
ATH
Upplýsingar
Calle Las Retamas, 1 San Agustin, 35100 Maspalomas, Gran Canaria
Kort