Hótel Queens er 2ja stjörnu gisting í gamla bænum á Benidorm, örstutt frá Levante ströndinni. Hafa ber í huga að hótelið er við göngugötu þannig að rúta kemst ekki að hótelinu því þurfa gestir að ganga ca 150 metra til að komast að hótelinu. ATH að hótelið er aðeins fyrir 16 ára og eldri.
GISTING
Herbergin eru stílhrein með sérbaðherbergi, öryggishólfi, loftkælingu, gervinhnattasjónvarpi.
AÐSTAÐA
Engin sundlaug er á hótelinu en ströndin í aðeins 2 min fjarlægð og því auðvelt að nýta sér hana á meðan að dvöl stendur. Bar er á þakinu með frábæru útsýni.
AFÞREYING
Skemmtidagskrá er á kvöldin á hótelinu en það er alltaf stutt í fjörið á Benidorm.
VEITINGAR
Morgunverður af matseðli er alla daga, bar á þaki hótelsins og snarlbar.
STAÐSETNING
Hótelið er staðsett í um 2 mínútna fjarlægð frá Levante ströndinni og stutt er í veitingastaði, kaffihús og verslanir. Fyrir framan hótelið er tapas staðurinn Cava Aragonesa einn sá vinsælasti á Benidorm og einnig eru barir með tónlist við hótelið
Upplýsingar
Plaza Constitucion, 5, 03501 Benidorm, Alicante, Spánn
Kort