Golden Bahia de Tossa er 4 stjörnu hótel, staðsett í Tossa de Mar og í um 800 metra fjarlægð frá ströndinni. Á hótelinu eru fimm sundlaugar, SPA og barir. Hótelið er fjölskylduvænt og er vinsælt meðal hjólreiðafólks en hægt er að bóka sér hjólreiðaferðir í gegnum hótelið. ATH að enskumælandi fararstjóri er á svæðinu.
GISTING
Herbergin á hótelinu eru rúmgóð, snyrtileg og öll með loftkælingu (júní - september), sjónvarpi og aðstöðu til að gera kaffi eða te. Hægt er að velja um tvíbýli eða tvíbýli með sundlaugarsýn.
AÐSTAÐA
Fimm sundlaugar eru í garðinum ásamt heilsulind, heitum potti og sánu. Einnig er hægt að panta nudd og aðrar meðferðir. Frábært svæði fyrir börnin með barnalaug, sjóræningjabát og rennibrautum. Á svæðinu er líkamsrækt, fótboltavöllur, körfuboltavöllur, tennisvöllur, blakvöllur og badmintonvöllur. Hægt er að leiga handklæði fyrir sundlaugina gegn tryggingu.
FYRIR BÖRNIN
Barnalaug, sjóræningjaskip með rennibrautum og krakkaklúbbur.
VEITINGASTAÐIR
Á hótelinu má finna fjóra veitingastaði. Hlaðborðsveitingastað, a la carte og snarl og tapas stað.
STAÐSETNING
Hótelið er vel staðsett í bænum Tossa de Mar sem er í um 10 mínútna keyrslu frá Lloret de Mar.
AÐBÚNAÐUR Á GOLDEN BAHIA DE TOSSA
Útisundlaug
Sólbaðsaðstaða
Veitingastaður
Hlaðborðsveitingastaður
Barnalaug
Heilsulind
Nuddpottur
Leikvöllur
Loftkæling
Svalir/verönd
Öryggishólf (gegn gjaldi)
Baðherbergi
Hjólaleiga
Íþróttavellir
Handklæðaleiga
ATH
Upplýsingar
Avda. Puerto Rico, 7 Tossa de Mar Costa Brava Spain
Kort