Evenia Olympic Park er einstaklega fjölskylduvænt og skemmtilegt hótel staðsett í rólegu umhverfi í Lloret de Mar. ATH að enskumælandi fararstjóri er á svæðinu.
Gisting
Herbergin eru björt með svölum, öryggishólfi (leiga), sjónvarpi og fataskáp. Baðherbergi með hárþurrku og snyrtivörum. Hægt er að leigja ísskáp.
Aðstaða
Hótelsvæðið sjálft er mjög stórt, eða alls 30.000 m2. Þar er stór garður, tvær sundlaugar, einn vatnagarður, tvær upphitaðar sundlaugar, tennisvöllur, líkarmsrækt og heilsulind.
Gestir þurfa að greiða auka gjald til að fá aðgang að líkamsræktinni og heilsulindinni.
Í líkamsræktinni er spinning herbergi, líkamræktartæki, þrjár upphitaðar laugar, sauna, nuddpottur, tvö rými fyrir ýmsa hópatíma líkt og pilates, judo, yoga, skvass og fleira.
Á hótelinu eru tvær lyftur.
Afþreying
Ýmislegt er í boði til að gera sér glaðan dag á hótelinu. Til að mynda tennisvöllur, spa, diskó, líkamsrækt og fleira. Skemmtidagskrá fyrir alla fjölskylduna daglega.
Veitingastaðir
Hlaðborðsveitingastaður með alþjóðlega rétti. Einnig er snarlbar við sundlaugarbakkann.
Fyrir börnin
Krakkaklúbbur heldur uppi fjörinu fyrir þau yngstu, leikvöllur og barnalaug.
Staðsetning
Hótelið er í rólegu umhverfi í Lloret de Mar. Einn kílómetri að strönd, Tossa er í 10 mínútna akstursfjarlægð og Barselona er innan við klukkustundar akstursfjarlægð.
AÐBÚNAÐUR Á EVENIA OLYMPIC PARK
Svalir/verönd
Baðherbergi
Sjónvarp
Öryggishólf(gegn gjaldi)
Loftkæling
Útisundlaug
Innisundlaug
Sólbaðsaðstaða
Bar
Setustofa
Skemmtisýningar
Krakkaklúbbur
Líkamsrækt
Heilsulind
Vatnsrennibrautir
ATH
Upplýsingar
Edificio Suites, Carrer Sra. del Rossell, S/N, 17310 Lloret de Mar, Girona, Spánn
Kort