AÐSTAÐA
Apartamentos 3HB Clube Humbria er mikið endurnýjað fjölskylduhótel, staðsett í fallega sjávarþorpinu.‘ Olhos de Aqua
Hótelið er í 800 metra fjarlægð frá ströndinni og býður upp á íbúðir með útsýni yfir garðinn og sundlaugina.
Á hótelinu eru útisundlaugar fyrir fullorðna og börn, sundlaugarbar, aðalbar, leiksvæði fyrir börn, lítinn vatnagarð fyrir börn og barnaklúbb.
Önnur aðstaða á staðnum er meðal annars hlaðborðsveitingastaður, sjoppa, fjölíþróttavöllur og skemmtun á dag og nótt.
Bílastæði úti og einkabílskúr eru einnig í boði ef laust.
GISTING
3HB Clube Humbria er með bjartar, loftkældar íbúðir með einu svefnherbergi, flatskjásjónvarpi og sérbaðherbergi. Þessar einingar eru með fullbúnum eldhúskrók og borðkrók.
STAÐSETNING
3HB Club Humbria er staðsett einungis 800 metrum frá ströndinni og er í um 4 kílómetra fjarlægð frár miðbæ Albufeira. Á ströndinni geta gestir notið sín í sólbaði og býður ströndin upp á mikla möguleika fyrir vatnaíþróttir. Einnig eru golfvellirnir Pine Cliffs og Balaia í innan við 2 kílómetra fjarlægð frá hótelinu.
AÐBÚNAÐUR
Dagleg þrif
Nálægt ströndinni
Veitingastaður og 2 barir / setustofur
Útisundlaug
Ókeypis vatnagarður
Ókeypis barnaklúbbur
Líkamsræktarstöð
Heilsulindarþjónusta
Flugrúta
Sólarhringsmóttaka
Ókeypis þráðlaust internet
Ókeypis bílastæði
Barnalaug
Leikvöllur á staðnum
Barnapössun eða barnagæsla (aukagjald)
Krakkaklúbbur (ókeypis)
Umsjón / barnagæsla (aukagjald)
ATH
Ljósmyndir af gististöðum eru birtar til að gefa hugmynd um vistarverur og umhverfi gististaða. Við getum því ekki ábyrgst að engar breytingar hafi átt sér stað frá því að myndirnar voru teknar.
Aðgangur að interneti getur verið hægari á álagstímum. Vinsamlegast athugið að internet er yfirleitt frekar hægt á gististöðum.
Upplýsingar
Estrada De Albufeira, 8200-609 Olhos De Água, Albufeira, Portúgal
Kort