Fara í aðalefni
Farangur
BÆTA VIÐ TÖSKU EFTIR KAUP
Ef þú vilt bæta við tösku eftir að þú ert búin/n að kaupa flug
1. Getur bætt við tösku í netinnritun sem opnar 24 klst fyrir brottför.
2. Sent póst á info@plusferdir.is með bókunarnúmeri og beiðni um að bæta við tösku.
SUBJECT: BÓKA TÖSKU MEÐ FLUGI
 
Athugið að ekki er hægt að bæta við tösku ef minna en 3 sólahringar eru í flugið þitt.
 
 
Kaupa farangur þegar þú kaupir aðeins flug 
Í flugi með NEOS er persónulegur hlutur sem passar undir sæti innfalinn í verði.
 
Þú getur bætt við ferðatösku þegar þú kaupir flug eingöngu. 
Fyrsta taska (20 kg) — ef bókuð á sama tíma og flugið 7.900 kr á fluglegg
Fyrsta taska (20 kg) — ef keypt síðar 9.900 kr. á fluglegg
 
 
Sjá hér fyrir neðan mynd hvar tösku er bætt við. 
 
 
  
 
Farangur í pakkaferð
Í pakkaferð með NEOS er innifalið í verði:
Handfarangur max 8kg sem passar í farangurshólf 55x40x20cm.  
Innritaður farangur max 20kg er innifalinn í pakkaferð. Hámark 158cm.
 
 
 
Farangursheimild barna
Að auki innifaldnar farangursheimildar með flugi NEOS, má taka með sér um borð; barnasæti fyrir ungabörn (ef keypt hefur verið sæti fyrir barnið), ferlihjálpartæki og sjúkrabúnað ef búnaður og tæki eru þér nauðsynleg.
 
Þegar ferðast er með ungbarn undir 2 ára aldri (24 mánaða) er ekki tekið frá sæti fyrir barnið vegna þess að það situr í fangi foreldris. Hægt er að kaupa sæti fyrir ungabarn, en það verður að sitja í fangi foreldris í sérstaku ungbarnabelti, við flugtak og lendingu samkvæmt alþjóðlegum öryggisflugreglum. Einnig þarf að hafa ungbarnið í fangi foreldris ef ókyrrð verður í flugi og á meðan kveikt er á sætisljósum vélarinnar.
 
Enginn innritaður farangur er innifalinn og handfarangur er takmarkaður við eina tösku með helstu nauðsynjarvörum fyrir barnið. Taka má með samfellanlega smákerru og ungbarnabílstól sem fellur ofan í kerruna.
 
Fyrir börn 2ja ára og eldri gildir sama farangursheimild og fyrir fullorðinn. Það er heimilt að taka kerru fyrir börn upp að 6 ára aldri. Barnastólar og annar farangur dregst frá farangursheimildinni.