Enska ströndin

Rúmgóðar stúdíóíbúðir á líflegu svæði á Ensku ströndinni, skammt frá verslunarmiðstöðvunum Metro og Kasbah og fjölda veitingahúsa. Aðeins 250 metrar eru á ströndina.

GISTING

Rúmgóðar stúdíóíbúðir. Sum studíóin hafa nýlega verið tekin í gegn og eru þau á fyrstu og annarri hæð. Í öllum íbúðum er gervihnattasjónvarp gegn gjaldi, sími, öryggishólf, baðherbergi með sturtu og svalir með garðhúsgögnum.  Svefnaðstaðan og stofan eru í einu rými en þó með litlum vegg sem skilur svæðin af. Óvenju rúmgóð studíó. Eldhúsið er alveg sér og í eldhúskróknum eru eldavélarhellur og ísskápur. Það þarf að biðja um kaffivél í lobbýinu.  

AÐSTAÐA

Í sundlaugargarðinum er sundlaug, tennisvöllur, barnalaug og lítið leiksvæði fyrir börn. Á þaki hússins, á 8.hæð, er hægt að sóla sig og njóta útsýnisins yfir Ensku ströndina um leið. Það eru ekki handklæði á herbergi fyrir sundlaugargarðinn.  

Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn og þar er þráðlaust internet. Einnig er hægt að fá internet inn á íbúðirnar gegn gjaldi en vinsamlegast athugið að internet er yfirleitt frekar hægt á gististöðum. 

VEITINGASTAÐIR

Fjöldi veitingastaða er í næsta nágrenni s.s. Rimini, El Chuleton, Gran Slow Boat og El Gaucho

FYRIR BÖRNIN

Barnalaug og lítið leiksvæði fyrir börn.

Upplýsingar

Avenida de Italia 23, Playa del Inglés 35100, Spain

Kort