Corona Blanca er snyrtileg 2ja stjörnu íbúðagisting á Ensku ströndinni. Við hliðina á hótelinu er kaffihúsið Café de Paris sem er mjög vinsælt meðal Íslendinga. Stór sundlaugargarður og einungis 400 metrar á ströndina.
GISTING
Hægt er að velja um íbúðir með einu svefnherbergi eða superior íbúðir með einu svefnherbergi. Íbúðirnar eru nokkuð rúmgóðar, snyrtilegar og vel búnar. Þær eru með baðherbergi, eldhúskrók, sjónvarpi og svölum eða verönd. Hægt er að leigja öryggishólf og gervihnattarstöðvar fyrir sjónvarpið, gegn gjaldi. Útsýni frá svölum er misjafnt, sumar svalir snúa út í garð og aðrar ekki. Hægt er að leigja öryggishólf gegn gjaldi í gestamóttöku. Íbúðirnar eru þrifnar 5x í viku og skipt um handklæði á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum.
AÐSTAÐA
Stór garður með sundlaug og sérstakri barnalaug ásamt sólbaðsaðstöðu. Einnig er tennisvöllur á hótelinu. Á jarðhæð eru þvottavélar sem ganga fyrir klinki svo að auðvelt er að þvo af sér á meðan að fríinu stendur. Hægt er að kaupa strandhandklæði fyrir 12 evrur.
VEITINGAR
Á Corona Blanca er ítalskur veitingastaður sem ber nafnið Rimini og hinn frægi bistro Café Paris. Þessir veitingstaðir eru í rauninni ekki hluti af hótelinu en eru í sömu byggingu.
STAÐSETNING
Hótelið er í hjarta Ensku strandarinnar, nálægt öllum helstu verslunar- og þjónustustöðum, t.d. Plaza Maspalomas, Kasbah og Metro. Aðeins 400 m á ströndina.
AÐBÚNAÐUR Á CORONA BLANCA
Íbúðir
Baðherbergi
Eldhúskrókur
Svalir/verönd
Öryggishólf(gegn gjaldi)
Sundlaug
Barnalaug
Sólbekkir
Veitingastaður
Hjólaleiga
Nudd
Þráðlaust internet(gegn gjaldi)
ATH
Upplýsingar
Avenida de Tenerife 11, 35100 Playa del Inglés, Gran Canaria, Spánn
Kort