Calpe

Íbúðagisting sem opnað var sumarið 2006. Íbúðirnar eru með einu eða tveimur svefnherbergjum. Íbúðagistingin er staðsett í u.þ.b. 200 metra fjarlægð frá ströndinni í Calpe.

Sækja þarf lykla á APARTAMENTOS TURMALINA sem er við Avenida Juan Carlos # 26,  (gestamóttakan á Turmalina er opin allan sólarhringinn)

Gestir þurfa að greiða 100 - 150 evru tryggingagjald sem fæst endurgreitt við brottför. Gestir þurfa að yfirgefa íbúðirnar kl. 10:00 á brottfarardag.


Íbúðirnar eru vel búnar, loftkældar með sjónvarpi, síma, þvottavél og vel útbúnu eldhúsi. Skipt er um handklæði og á rúmum á 8 daga fresti. Íbúirnar eru staðsettar við hliðina á Hótel Diamante Beach og geta gestir frá Ambar notað alla þjónustu þar eins og heilsurækt, kaffihús, bari og veitingahús.

Íbúðir með einu svefnherbergi rúma 3 fullorðna eða 2 fullorðna og 2 börn.  Íbúðir með tveimur svefnherbergjum rúma allt að 5 fullorðna og eða 4 fullorðna og 2 börn.
 

Calpe svæðið er svo sannarlega perla Costa Blanca strandarinnar, sem þekkt er fyrir sinn hvíta sand og túrkís-bláan sjó. Svæðið, sem er í um 50 mínútna akstursfjarlægð frá Alicante borginni, er stundum líkt við hina þekktu Miami South Beach vegna hvítra stranda og iðandi mannlífi. Bærinn sem iðar af lífi á sér langa og merkilega sögu sem speglast í fallegum mannvirkjum og lifandi menningu. Hér ættu því allir að finna eitthvað við sitt hæfi, hvort sem það eru girnilegar hvítar strendur og tær sjórinn, mannlíf, saga eða næturlíf. Á svæðinu eru ótal góðir veitingastaðir, en við mælum sérstaklega með veitingastöðunum sem sérhæfa sig í sjávarfangi. Inni í bænum, stutt frá sjónum er grunt vatn sem nefninst Las Salninas og þar má gjarnan sjá Flamingó fugla í þyrpingum. Yfir svæðinu trónir svo Penón de Ifach kletturinn sem býður upp stórkostlegar gönguleiðir og stórbrotið útsýni yfir hafið og nærliggjandi svæði. Calpe er dásamlegt svæði sem slegið hefur í gegn. 

Boðið er uppá akstur milli Alicante flugvallar og gististaða á Benidorm, Albir, Altea og Calpe á öllum flugdögum yfir sumartímann. Ef ekki fæst næg þátttaka áskiljum við okkur rétt á því að fella aksturinn niður. Farþegar verða látnir vita með nokkra daga fyrirvara ef um slíkt er að ræða.

Upplýsingar

Tossa De La Cometa, Calpe, 03710 Spain

Kort