Puerto de Mogan

Puerto de Mogán er einstaklega fallegur strandbær á suð-vestur hluta Gran Canaria - frábært svæði fyrir þá sem vilja afslöppun í fallegu umhverfi. 

Cordial Mogán Valle hótelið er fjölskylduvænt 3ja stjörnu íbúðahótel í hinum fallega strandbæ Puerto de Mogán. Mogán Valle er í dæmigerðum kanarískum byggingastíl. Hótelið er í tveimur byggingum með gestamóttöku í miðjunni. Í garðinum er góð sundlaug og barnalaug með leiktækjum. Mjög fallegt hótel að okkar mati, rólegt og þægilegt andrúmsloft. 

GISTING 

Rúmgóðar, bjartar íbúðir með góðum aðbúnaði og einu svefnherbergi sem taka 3 fullorðna eða 2 fullorðna og 2 börn. Íbúðirnar eru með einu svefnherbergi, stofu, eldhúskrók og baðherbergi. Í öllum íbúðum er vifta í lofti, gervihnattasjónvarp, öryggishólf (gegn gjaldi), og eldhúskrókur með örbylgjuofni, brauðrist og kaffivél. Stórar svalir eða verönd með garðhúsgögnum og sólbekkjum. Frítt internet er í íbúðunum. 

AÐSTAÐA

Glæsilegur sundlaugagarður með þremur sundlaugum, sérstakri barnalaug, sólstólum og sólhlífum. Sundlaugarnar eru upphitaðar yfir vetrarmánuðina. Á hótelinu er líkamsrækt og heilsulind sem gestir geta sótt, gegn gjaldi. Þvottaaðstaða er á hótelinu (gegn gjaldi).

AFÞREYING

Tennisvöllur er á hótelinu. 

VEITINGAR 

Á hótelinu eru hlaðborðs-veitingastaður, snarlbar með létta rétti og sundlaugarbar. Einnig er þar a la carte veitingastaður sem sérhæfir sig í mexíkóskri matargerð. 

FYRIR BÖRNIN 

Sérstök barnalaug og leiksvæði fyrir börnin. Krakkaklúbbur er fyrir 4-12 ára krakka. 

STAÐSETNING 

Hótelið er staðsett í hinum fallega strandbæ Puerto de Mogán sem er oft nefndur „litlu Feneyjar“. 800 metrar eru í Mogán ströndina og fallegu höfnina. 200 metrar eru í strætóstoppistöð og stutt er í verslun og verslunarmiðstöð.

Puerto de Mogán er mjög fallegur standbær á suð-vestur hluta eyjunnar. Þetta svæði einkennist af rólegheitum, mjög fallegu umhverfi og hentar vel fólki sem er að leita að hvíld í fögru umhverfi. Hér er bara slökum og allir að njóta lífsins. Góð strönd er við Puerto de Mogán, með veitingastöðum og verslunum.

AÐBÚNAÐUR Á CORDIAL MOGÁN VALLE 

Útilaug 

Barnalaug 

Sólbekkir

Leikvöllur 

Nuddpottur

Líkamsrækt 

Heilsulind

Gufubað

Tennisvöllur

Frítt internet 

Sólarhringsmóttaka

Íbúðir með einu svefnherbergi

Eldhúskrókur 

Svefnherbergi

Svalir eða verönd

Garðhúsgögn 

Baðherbergi með baðkari eða sturtu

ATH
Ljósmyndir af gististöðum eru birtar til að gefa hugmynd um vistarverur og umhverfi gististaða. Við getum því ekki ábyrgst að engar breytingar hafi átt sér stað frá því að myndirnar voru teknar. 
 
Aðgangur að interneti getur verið hægari á álagstímum.  Vinsamlegast athugið að internet er yfirleitt frekar hægt á gististöðum. 
 
Skemmtidagskrá getur verið árstíðarbundin 

Athugið að rútuferðir til og frá flugvelli eru ekki í boði.

Upplýsingar

Avda de Canarias, Puerto de Mogan, Gran Canaria

Kort