Benidorm

Hótel Poseidon Resort er prýðilegt 3ja stjörnu hótel staðsett rétt við Levante ströndina. Það er auðvelt að njóta sín hvort sem það er á ströndinni, í sundlaugunum tveimur sem eru í garðinum eða bara í garðinum sjálfum.  

GISTING

Herbergin eru stílhrein en notaleg, þar er að finna m.a. síma, loftkælingu, hárþurrku, svalir, ísskáp, gervihnattasjónvarp, bað eða sturtu og fl.

AÐSTAÐA 

Í garðinum eru tvær sundlaugar og stór garður og því ættu allir að geta notið sín og slakað á.  Einnig er heitur pottur í garðinum, hægt að fá nudd gegn auka greiðslu.

AFÞREYING 

Nóg er um að vera á hótelinu á sumrin, krakkaklúbbur, borðtennis, billiard, leikvöllur fyrir börnin, leikjaherbergi og svo er dagskrá fyrir fullorðna fólkið.

VEITINGAR 

Góður matsalur (hlaðborð) er á hótelinu þar sem miðausturlenskur matur er borinn fram og bar.

STAÐSETNING 

Hótelið er staðsett í um 350 metra fjarlægð frá Levante ströndinni og því stutt í allt.

AKSTUR 

Boðið er uppá akstur milli Alicante flugvallar og hótela á Benidorm á öllum flugdögum yfir sumartímann. Ef ekki fæst næg þátttaka áskiljum við okkur rétt á því að fella aksturinn niður. Farþegar verða látnir vita með 7 daga fyrirvara ef um slíkt er að ræða. 

AÐBÚNAÐUR Á HÓTEL POSEIDON RESORT

Tvíbýli 

Baðherbergi 

Svalir 

Loftkæling 

Öryggishólf 

Sólbaðsaðstaða 

Útisundlaug 

Nudd (gegn auka gjaldi)

Leikvöllur

Veitingastaður(hlaðborð)

Bar

Krakkaklúbbur

ATH
Ljósmyndir af gististöðum eru birtar til að gefa hugmynd um vistarverur og umhverfi gististaða. Við getum því ekki ábyrgst að engar breytingar hafi átt sér stað frá því að myndirnar voru teknar. 
 
Aðgangur að interneti getur verið hægari á álagstímum.  Vinsamlegast athugið að internet er yfirleitt frekar hægt á gististöðum.
 
Skemmtidagskrá getur verið árstíðarbundin. 

Upplýsingar

Calle del Esperanto, 9, 03503 Benidorm, Alicante, Spánn

Kort