Los Cristianos

Coral Los Alisios er ný uppgert (2017) íbúðahótel með 146 íbúðum. Hótelið er á suðurströnd Tenerife - í Los Christianos og í rúmlega kílómetra fjarlægð frá ströndinni. Ekki er mælt með hótelinu fyrir þá sem eiga erfitt  með gang.

GISTING

Íbúðirnar og svíturnar eru þægilegar, nútímalegar og bjartar.  
Þær eru  með svölum, svefnherbergi , stofu með svefnsófa, eldhúsi með eldahellum, örbylgjuofni, ísskáp, kaffivél, síma, flatskjá, WiFi og öryggishólfi. Á baðherberginu er sturta. Næstum allar íbúðirnar eru með útsýni yfir sundlaugina. Engin loftkæling er á herbergjum, en hægt er að leigja viftur inn á íbúðir. 

AÐSTAÐA
Sundlaug sem er upphituð á veturna, þar er sér busllaug með leiktækjum fyrir börn. Við sundlaugina er fallegur garður og góð aðstaða til sólbaða.  Móttakan er opin allan sólahringinn, á hótelinu er lyfta. Einnig er líkamsræktar aðstaða. 

VEITINGASTAÐIR
Hlaðborðsveitingastaðurinn er með stórri verönd. Einnig er sundlaugarbar. 

STAÐSETNING
Golfvöllurinn Las Americas er í 1.6 km fjarlægð. Strönd er í rúmlega 1 km. fjarlægð og Siam Park í 2.5 km fjarlægð. 

Ath.

Vinsamlegast athugið á tímabilinu apríl - maí 2024 mun málningarvinna eiga sér stað á hótelinu. Vinnan verður svæðaskipt og ætti ekki að  trufla hótelgesti.

Upplýsingar

Carretera Vieja a Guaza, s/n, 38660, Los Cristianos, Arona, Santa Cruz de Tenerife, Spánn

Kort