Maspalomas

Hótel Riu Gran Canaria er flott 4 stjörnu hótel í Maspalomas. Hugguleg herbergi, flottur garður með frábæru útsýni og góðri sólbaðsaðstöðu.  Á hótelinu er ALLT INNIFALIÐ

GISTING 

Herbergin eru rúmgóð og hugguleg útbúin loftkælingu, wifi, öryggishólfi (gegn gjaldi), mini bar, hraðsuðukatli og svalir/verönd. Hægt er að velja um tvíbýli eða tvíbýli með garðsýn.

AÐSTAÐA 

Stór og góður garður með tveimur sundlaugum,önnur er upphituð á veturnar, „infinity“ laug (aðeins fyrir fullorðna) og tvær barnalaugar en önnur er með rennibrautum. Góð sólbaðsaðstaða með sólbekkjum, sólhlífum og handklæðum (gegn tryggingargjaldi).

Líkamsrækt, SPA og gufubað. Einnig er barnaklúbbur og unglingaklúbbur á hótelinu.

AFÞREYING 

Á hótelinu er fjölbreytt dagskrá fyrir fullorðna, börn og unglinga s.s. skemmtisýningar og leikir. Einnig geta gestir nýtt sér likamsræktar- og SPA aðstöðuna.

Stutt frá hótelinu má finna tvo 18 holu golfvelli, minigolf, keilu og reiðhjólaleigu.


VEITINGAR

Hlaðborðsveitingastaðurinn er með morgun-, hádegis- og kvöldverð. Kvöldverðurinn fer fram á veitingastöðunum Las Dunas og El Patio. Tvisvar í viku eru þemakvöld. Innlendir drykkir eru innifaldir.

Einnig er hægt að panta borð fyrirfram á asíska veitingastaðinn Kaori eða Atlantico sem er með kanaríska matseld. Hægt er að nálgast snarl allan sólarhringinn.  

 

FYRIR BÖRNIN

Margt skemmtilegt um að vera fyrir börnin, krakkaklúbbur, unlingaklúbbur, sundlaug með rennibrautum og leikvöllur.

STAÐSETNING 

Hótelið er vel staðsett við sandöldurnar á Maspalomas og í um 15 min göngufjarlægð frá Faro vitanum.

AÐBÚNAÐUR Á RIU GRAN CANARIA

Sólbekkir 

Sólhlífar

Sundlaugarhandklæði (gegn tryggingargjaldi)

Sundlaug

Barnalaug 

Leikvöllur 

Líkamsrækt 

Snarlbar 

Hlaðborðsveitingastaður

Barnadagskrá 

Svalir eða verönd 

Baðherbergi 

ATH

Ljósmyndir af gististöðum eru birtar til að gefa hugmynd um vistarverur og umhverfi gististaða. Við getum því ekki ábyrgst að engar breytingar hafi átt sér stað frá því að myndirnar voru teknar. 

Aðgangur að interneti getur verið hægari á álagstímum. 

Á þeim hótelum þar sem allt er innifalið getur verið að hótel takmarki heimsóknir til gesta sinna til þess að standa vörð um þjónustu sína. Þó taka hótel misjafnlega á þessu. Gott er því að hótelgestir ræði við starfsfólk áður en gestum er boðið í heimsókn til þess að fyrirbyggja óánægju og vandræði.

Skemmtidagskrá getur verið árstíðarbundin.

Upplýsingar

Urbanización Las Meloneras Avenida del Mediterraneo s/n, 35100 Maspalomas Gran Canaria

Kort