Beverly Hills er snyrtileg þriggja stjörnu íbúðagisting í Los Cristianos. Hótelið er staðsett í hlíð fyrir ofan Los Cristianos sem er í um 15-20 mín göngufjarlægð frá miðbæ Los Cristianos og ströndinni.
GISTING
Í boði eru stúdíó og íbúðir með einu eða tveimur svefnherbergjum. Íbúðirnar eru með vel búnu eldhúsi og örbylgjuofn, brauðrist, kaffivél og eldavél. Gestir geta keypt aðgang að þráðlausu interneti og leigt öryggishólf gegn gjaldi. Hótelið fer fram á 100 evru tyggingu við komu. Herbergin eru þrifin á 4 - 7 daga fresti eftir lengd dvalar. Loftkæling er ekki á herbergjum.
AÐSTAÐA
Á hótelinu er góð aðstaða, góður sundlaugagarður með stórri sundlaug, barnalaug og sólbekkjum. Þvottaaðstaða er á hótelinu gegn gjaldi. Frítt internet er í sameiginlegu rými. Gestir hafa aðgang að bílastæðum, en fer það þó eftir framboði. Athugið, er staðsett í brattri hlíð og er því ekkert sérlega þægilegt fyrir fólk sem á erfitt með gang.
VEITINGAR
Val er um íbúðir með morgunverði eða hálfu fæði. Á hótelinu er veitingastaður með hlaðborð og a la carté veitingastaður. Þar er einnig snarlbar þar sem hægt er að fá léttar veitingar og fljótandi veigar.
FYRIR BÖRNIN
Á hótelinu er dagskrá fyrir börn.
STAÐSETNING
Hótelið er staðsett í brattri hlíð í Los Cristianos og ekkert sérstaklega þægilegt fyrir fólk sem á erfitt með gang. 15-20 mínútna göngufjarlægð á ströndina og miðbæ Los Cristianos.
AÐBÚNAÐUR Á BEVERLY HILLS
Íbúðir
Lítið eldhús
Baðherbergi
Útisundlaug
Sólbaðsaðstaða
Loftkæling
Hlaðborðsveitingastaður
Veitingastaður a la carté
Upplýsingar
Calle Rodeo s/n Oasis del Sur Los Cristianos
Kort